[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Inchauspé, alla jafna kölluð „glúkósagyðjan“, hefur getið sér gott orð fyrir að setja fram vísindalegar staðreyndir um blóðsykursstjórnun á einfaldan og auðskilinn máta, er það sem gerir bækur hennar svona ótrúlega vinsælar

Inchauspé, alla jafna kölluð „glúkósagyðjan“, hefur getið sér gott orð fyrir að setja fram vísindalegar staðreyndir um blóðsykursstjórnun á einfaldan og auðskilinn máta, er það sem gerir bækur hennar svona ótrúlega vinsælar.

Lífefnafræðingurinn og metsöluhöfundurinn gaf sér nokkrar mínútur til að svara fáeinum spurningum. Inchauspé er stödd í Parísarborg um þessar mundir en sjálf segist hún vera mikil flökkukind.

„Fyrir alla sem langar að líða betur“

Erlendur bókaútgefandi hafði samband við Inchauspé fyrir örfáum árum eftir að hafa rekist á Instagram-reikning hennar. Hún heldur úti vinsælli samfélagsmiðlasíðu og er með milljónir fylgjenda. „Ég var beðin um að skrifa bókina. Aldrei hefði mér dottið í hug að vinnan mín myndi vekja svona mikla athygli og í þessu formi,“ segir Inchauspé.

„Ég vissi alltaf að ég vildi hjálpa fólki að öðlast sjálfstæði þegar kemur að heilsunni. Vinna mín sem lífefnafræðingur hefur nú hjálpað mér að koma þessum skilaboðum áleiðis til fólks á auðveldan og aðgengilegan máta. Það besta er að efnið er stutt með vísindalegum sönnunargögnum sem geta hjálpað hverjum sem er að bæta líkamlega og andlega heilsu sína,“ útskýrir hún. „Bækurnar eru fyrir alla sem langar að líða betur.“

Hvað var það sem vakti athygli lesenda?

„Fólk heldur áfram að verða veikara og veikara og við þurfum einfaldlega að beita almennri skynsemi og leita í alvöru vísindi til að skera upp herör gegn markaðssetningu hins svokallaða matarlandslags sem við búum við í dag.“

Vinsældir bókanna komu Inchauspé þó verulega á óvart. „Ég vissi bara að þessi vísindi þyrftu að komast út í umheiminn og er ég því mjög ánægð að þau náðu þessum vinsældum og athygli,“ segir hún.

Helsti orkugjafi líkamans

Til að koma jafnvægi á blóðsykurinn er mikilvægt að borða hollan og næringarríkan mat, en glúkósi er mikilvægasti orkugjafi líkamans, sérstaklega fyrir heilann.

Af hverju er mikilvægt að halda jafnvægi á blóðsykrinum?

„Óstöðug blóðsykursgildi geta haft víðtæk áhrif og margvíslegar afleiðingar, allt frá þreytu til bólgna, hormónaójafnvægis og sykursýki II,“ segir Inchauspé, en sykursýki II er talin sá sjúkdómur sem fer mest vaxandi í heiminum.

Ertu með góð ráð til að viðhalda jöfnum blóðsykri?

„Já, ég er með mörg góð ráð í bókum mínum en einblíni á þau fjögur mikilvægustu í seinni bókinni, Fjórar vikur, fjögur ráð. Það sem mér finnst skipta mestu máli er að byrja daginn á bragðmiklum morgunmat en svo skiptir hreyfing að sjálfsögðu máli.“

Höf.: Erna Ýr Guðjónsdóttir |