Dwayne „The Rock“ Johnson gerði ótrúlegt góðverk fyrir jólin. Í æsku dreymdi hann um að fá að kaupa sér leikföng í versluninni FAO Schwarz þegar pabbi hans heimsótti New York. Faðir hans var glímukappi og ferðaðist mikið til að keppa

Dwayne „The Rock“ Johnson gerði ótrúlegt góðverk fyrir jólin. Í æsku dreymdi hann um að fá að kaupa sér leikföng í versluninni FAO Schwarz þegar pabbi hans heimsótti New York. Faðir hans var glímukappi og ferðaðist mikið til að keppa. En Dwayne ólst upp við mikla fátækt og þessi ósk var aldrei uppfyllt. Mörgum árum síðar, rétt fyrir jólin í fyrra, gekk Dwayne inn í þessa sömu leikfangaverslun og keypti leikföng fyrir alla sem voru staddir þar inni. Honum var sama hver var með hvað og greiddi hann fyrir allt. Lestu stjörnufréttir á K100.is.