Reyndur Jón Ólafur Daníelsson hefur áður þjálfað ÍBV í níu ár.
Reyndur Jón Ólafur Daníelsson hefur áður þjálfað ÍBV í níu ár. — Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir
Jón Ólafur Daníelsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs ÍBV í knattspyrnu til næstu fimm ára. Hann tekur við af Todor Hristov, sem stýrði liðinu í fyrra, en þá féll það úr Bestu deildinni og leikur því í 1

Jón Ólafur Daníelsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs ÍBV í knattspyrnu til næstu fimm ára. Hann tekur við af Todor Hristov, sem stýrði liðinu í fyrra, en þá féll það úr Bestu deildinni og leikur því í 1. deild í ár. Jón þekkir vel til fótboltans í Eyjum, enda Eyjamaður sjálfur og þjálfaði kvennalið ÍBV samfleytt frá 2007 til 2014, og síðan aftur árið 2019, ásamt því að hafa verið yfirþjálfari félagsins. Síðast þjálfaði hann kvennalið Grindavíkur árin 2021 og 2022.