— Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Agnar Már Másson agnarmar@mbl.is Kvikugangurinn undir Grindavík er um 15 km að lengd og mesta opnunin um átta metrar. Hann sker jarðskorpuna á 1 til 5 km dýpi.

Agnar Már Másson

agnarmar@mbl.is

Kvikugangurinn undir Grindavík er um 15 km að lengd og mesta opnunin um átta metrar. Hann sker jarðskorpuna á 1 til 5 km dýpi.

Kemur þetta fram í grein íslenskra sérfræðinga sem var birt í bandaríska tímaritinu Science í gær, sama dag og gos hófst á milli Stóra-Skógfells og Sundhnúka. Skýringum er varpað fram um tilurð kvikugangsins við Grindavík sem myndaðist í jarðhræringunum 10. nóvember.

Aðalhöfundar greinarinnar eru m.a. Freysteinn Sigmundsson, vísindamaður í jarðeðlisfræði við HÍ, og Michelle Maree Parks, sérfræðingur í jarðskorpurannsóknum á Veðurstofunni.

Í Science kemur fram að gangurinn hafi myndast að miklu leyti á um sex klukkustundum hinn 10. nóvember en áætlað er að kvikustreymi inn í hann hafi þá verið meira en sjö þúsund rúmmetrar á sekúndu.

Meðalrennsli í lengsta fljóti landsins, Þjórsá við Urriðafoss, er um 360 rúmmetrar á sekúndu. Það þyrfti því tuttugu Þjórsár til að jafna rennslið inn í bergganginn eins og það var 10. nóvember.

Miklu meira innstreymi

„Þótt eldgosin í desember og janúar síðastliðnum hafi verið ákveðið sjónarspil þá var kvikustreymið inn í kvikuganginn þann 10. nóvember í fyrra miklu meira þrátt fyrir að ekki hafi komið til eldgoss í það skiptið,“ er haft eftir Freysteini í fréttatilkynningu um greinina.

Freysteinn telur að þetta mikla streymi kviku skýrist annars vegar af áhrifum togkrafta í jarðskorpunni og hins vegar af því að meiri þrýstingur hafi getað byggst upp í kvikusöfnunarsvæðinu í eldstöðvakerfi Svartsengis, áður en jaðar þess gaf sig í fyrsta sinn í jarðhræringunum í nóvember, en gerst hefur í seinni eldsumbrotum. Freysteinn segir að verið sé að meta yfirstandandi eldgos í samhengi við fyrri atburði á svæðinu en augljóst sé að þegar eldgos er nærri byggð og innviðum geti það haft mikinn eyðileggingarmátt þrátt fyrir að vera ekki endilega stórt í sniðum.

3 km löng gossprunga

Í gær hófst eldgos tvær mínútur yfir sex í gærmorgun á sömu slóðum og gaus 18. desember sl. Gossprungan var um 3 km löng. Er þetta sjötta gosið á Reykjanesskaga á tæpum þremur árum.

Hraun rann í vesturátt yfir Grindavíkurveg og laust fyrir hádegið rauf það Njarðvíkuræðina, sem sér Suðurnesjum fyrir heitu vatni. Þá ákvað ríkislögreglustjóri að lýsa yfir neyðarstigi almannavarna vegna rofs á afhendingu á heitu vatni. Síðan dró úr krafti gossins og um klukkan 17 gaus aðeins á tveimur stöðum á gossprungunni.