30 ára Pétur er Reykvíkingur, ólst upp í Seláshverfi og býr þar. Hann er tannlæknir frá HÍ og starfar hjá Tannlæknum Höfðabakka. Áhugamálin eru fótbolti, golf og veiði, en Pétur spilaði fótbolta upp í 2

30 ára Pétur er Reykvíkingur, ólst upp í Seláshverfi og býr þar. Hann er tannlæknir frá HÍ og starfar hjá Tannlæknum Höfðabakka. Áhugamálin eru fótbolti, golf og veiði, en Pétur spilaði fótbolta upp í 2. flokk með Fylki.


Fjölskylda Maki Péturs er Andrea Kristín Pálsdóttir, f. 1996, hjúkrunarfræðingur frá HÍ og vinnur á Landspítalanum. Sonur þeirra er Egill Kári, f. 2023. Foreldrar Péturs eru hjónin Kjartan Gylfason, f. 1964, tannlæknir, og Anna Guðbjartsdóttir, f. 1964, kennari í Selásskóla. Þau eru búsett á æskuheimili Péturs í Seláshverfi.