Norður
♠ ÁK1065
♥ 7
♦ D92
♣ K653
Vestur
♠ G43
♥ K6
♦ K7543
♣ 1087
Austur
♠ 97
♥ G108543
♦ G6
♣ G94
Suður
♠ D82
♥ ÁD92
♦ Á108
♣ ÁD2
Suður spilar 6♠.
Spaðaslemma frá Bridshátíð var til umræðu á fuglaþingi. Slemman vannst á öllum borðum, enda legan góð – laufið fellur og tígullinn liggur þægilega fyrir tvísvíningu. „Eftir sem áður,“ segir Magnús mörgæs, „blasir alls ekki við hvernig best er að spila.“
Reynir Helgason fékk út tromp í BBO-leik. Hann drap á heima og spilaði hjartaás og hjarta. Þegar kóngurinn féll var eftirleikurinn auðveldur. – Gölturinn hafði lítið lagt til málanna fram að þessu en nú tók hann við sér: „Reynir gerði vel í því að trompa hjarta. Bæði gat kóngurinn fallið – annar eða þriðji – og svo var möguleiki á þvingun í hjarta og laufi. Áætlunin var greinilega að aftrompa vörnina og spila svo tígli á tíu. Þannig er öllu haldið opnu.“– Gölturinn hrærði í kaffibollanum: „Þetta var vel ígrunduð spilamennska en óþörf í þessari góðu legu. Eins og varnargarður án eldgoss.“