Króatía Dagur Sigurðsson er að taka við króatíska landsliðinu.
Króatía Dagur Sigurðsson er að taka við króatíska landsliðinu. — AFP
Dagur Sigurðsson hefur látið af störfum sem þjálfari karlaliðs Japans í handknattleik. Japanska handknattleikssambandið tilkynnti þetta í gær en í tilkynningu Japana kemur meðal annars fram að Dagur sé að taka við öðru landsliði

Dagur Sigurðsson hefur látið af störfum sem þjálfari karlaliðs Japans í handknattleik. Japanska handknattleikssambandið tilkynnti þetta í gær en í tilkynningu Japana kemur meðal annars fram að Dagur sé að taka við öðru landsliði. Landsliðið sem um ræðir er króatíska karlalandsliðið og verður Dagur fyrsti erlendi þjálfarinn til þess að stýra Króötum. Hann hefur einnig stýrt landsliðum Austurríkis og Þýskalands á þjálfaraferlinum.