Kylfingurinn Haraldur Franklín Magnús er jafn í efsta sæti eftir frábæran annan hring á Bain's Whisky Cape Town-mótinu í Höfðaborg í Suður-Afríku í gær. Haraldur fór á kostum og lék annan hringinn á aðeins 66 höggum eða sex höggum undir pari
Kylfingurinn Haraldur Franklín Magnús er jafn í efsta sæti eftir frábæran annan hring á Bain's Whisky Cape Town-mótinu í Höfðaborg í Suður-Afríku í gær. Haraldur fór á kostum og lék annan hringinn á aðeins 66 höggum eða sex höggum undir pari. Lék hann fyrsta hringinn á þremur höggum undir pari og er því samtals níu höggum undir pari. Haraldur fékk sex fugla og tólf pör á hringnum en mótinu lýkur á sunnudag.