50 ára Sigrún er Kópavogsbúi, ólst upp í Stórahjalla og býr í Kórahverfinu. Hún er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá HR og er sérfræðingur á fjárreiðusviði hjá Sjóvá. Helsta áhugamál Sigrúnar er golf

50 ára Sigrún er Kópavogsbúi, ólst upp í Stórahjalla og býr í Kórahverfinu. Hún er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá HR og er sérfræðingur á fjárreiðusviði hjá Sjóvá. Helsta áhugamál Sigrúnar er golf.

Fjölskylda Eiginmaður Sigrúnar er Magnús Þór Scheving, f. 1970, viðskiptafræðingur frá HR og er innkaupastjóri hjá Kemi. Börn þeirra eru Agnes Engilráð, f. 1994, Óliver Máni, f. 2002, og Elísabet Sunna, f. 2007, og barnabarn þeirra er Alda Rut, f. 2022, dóttir Agnesar. Foreldrar Sigrúnar voru hjónin Sigmar Ingvarsson, f. 1936, d. 2019, og Sólrún Aspar Elíasdóttir, f. 1936, d. 2023.