Síðdegisþættinum Skemmtilegri leiðin heim var streymt frá Tenerife fyrstu viku ársins. Þau spurðu íbúa eyjunnar hvað þeim fyndist um Íslendinga. Tenerife er án efa heitasti áfangastaður Íslendinga og sækja margir í hana yfir vetrartímann

Síðdegisþættinum Skemmtilegri leiðin heim var streymt frá Tenerife fyrstu viku ársins. Þau spurðu íbúa eyjunnar hvað þeim fyndist um Íslendinga. Tenerife er án efa heitasti áfangastaður Íslendinga og sækja margir í hana yfir vetrartímann. Heimamenn voru margir sammála því að Íslendingar höguðu sér ágætlega. „Þeir haga sér yfirleitt mjög vel, ég hef enga slæma reynslu,“ sagði einn veitingahúsaeigandi. „Þeir haga sér ágætlega, ég hef lítinn tíma til að eiga í samskiptum því það er mikið að gera,“ sagði annar. Lestu meira á K100.is.