Set hf. framleiðir rör og lagnir og starfrækir verksmiðju á Selfossi.
Set hf. framleiðir rör og lagnir og starfrækir verksmiðju á Selfossi.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Röraverksmiðjan Set ehf. á Selfossi er til sölu. Fyrirtækið sem á sér langa sögu hefur um langt skeið verið eitt um framleiðslu á einangruðum rörum og plaströrum hér á landi. Öll framleiðsla fer fram í verksmiðjum Sets á Selfossi og í Þýskalandi en…

Röraverksmiðjan Set ehf. á Selfossi er til sölu. Fyrirtækið sem á sér langa sögu hefur um langt skeið verið eitt um framleiðslu á einangruðum rörum og plaströrum hér á landi. Öll framleiðsla fer fram í verksmiðjum Sets á Selfossi og í Þýskalandi en félagið starfrækir einnig vöruhús í Reykjavík og söluskrifstofu í Danmörku.

Alls starfa um 110 manns hjá félaginu og velta samstæðunnar varð 7,5 milljarðar króna á síðasta ári. Viðskiptavinir Sets ehf. eru til að mynda veitur og sveitarfélög, orku- og fjarskiptafyrirtæki verktakar og svo byggingariðnaðurinn. Þá hefur félagið aukið við sig í framleiðslu og sölu á vörum og þjónustu við uppbyggingu í fiskeldi – sérstaklega landeldisstöðva.

Set er fyrirtæki sem hefur verið í fjölskyldueign frá fyrstu tíð.

„Með nýju eignarhaldi er lagður grunur að því að nýta tækifæri til vaxtar. Uppbygging innviða er eitt meginverkefna sem Ísland stendur frammi fyrir. Við höfum verið minnt á slíkt á síðustu vikum. Í uppbyggingu á næstunni hefur Set stórt hlutverk, enda mikil þekking og reynsla til staðar meðal starfsmanna,“ segir Bergsteinn Einarsson framkvæmdastjóri Sets. sbs@mbl.is