— Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Panem et circenses, brauð og leikar, var skýlaus og hávær krafa almúgafólks í Rómaveldi hinu forna. Pupullinn heimtaði sinn mat og sína afþreyingu vildu ráðamenn hafa hann við alþýðuskap og til friðs

Panem et circenses, brauð og leikar, var skýlaus og hávær krafa almúgafólks í Rómaveldi hinu forna. Pupullinn heimtaði sinn mat og sína afþreyingu vildu ráðamenn hafa hann við alþýðuskap og til friðs. Norðlensk börn í Ísbúðinni á Glerártorgi á Akureyri hafa að líkindum verið hófstilltari í sinni bænaskrá en engu að síður var handagangur í öskjunni í gær þegar öskudagur var haldinn hátíðlegur. Lítið eimir nú eftir af þeirri vinsælu iðju barna á öldinni sem leið, að laumast aftan að græskulausu fullorðnu fólki og hengja aftan á það svokallaða öskupoka.