Sigurbjörn Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
Vissir þú að þú ert ein af fegurstu og mikilvægustu perlunum í perlufesti Guðs skapara þíns?

Sigurbjörn Þorkelsson

Vertu

á meðan þú ert

því það er of seint

þegar þú ert farinn.

(Sigurbjörn
Þorkelsson)

Vissir þú að þú ert ein af fegurstu og mikilvægustu perlunum í perlufesti Guðs skapara þíns? Þú ert ofin/n úr dýrmætasta efni sem framleitt hefur verið.

Við erum svo ósjálfbjarga ein og sér en ólýsanlega fagrar og dýrmætar, himneskar lífsins perlur þegar vera okkar og tilgangur eru sett í samhengi við lífsins kjarna. Friðaðar, óendanlega dýrmætar náttúruperlur sem alls ekki má vaða yfir, vanvirða eða misnota.

Perlur sem hafa það hlutverk í heiminum að varðveita hið góða. Skína og vísa veginn svo heilindin fái blómstrað og notið sín.

Hvernig er það annars, eigum við ekki bara að standa saman um að hætta því að vera á stundum óþarflega óþolinmóð og hætta því að skamma sífellt og gelta á náungann? Og vera stundum kannski bara smá á staðnum án þess að vera fjarræn og alltaf að líta á símann?

Ræktum samskiptin, vináttuna og samböndin. Styðjum við þá sem þess þurfa með í þolinmæði og kærleika. Því við munum fá það svo margfaldlega til baka í betri líðan.

Hvort sem þú kemur eða ferð gleymdu þá aldrei húmornum, gleðinni, auðmýktinni og þakklætinu yfir undri lífsins. Því að fá að vera með, hvíla í stundinni og upplifa. Mundu að stundin er þín og hún er núna og þar og einmitt þar má finna hamingjuna. Brosum saman.

Brot úr demanti

Kærleikur Guðs

er líkt og demantur

sem fellur til jarðar

og splundrast

í óteljandi kristalla.

Einn þeirra

er ætlaður þér

svo þú fáir notið

þeirra verðmæta

um eilífð.

Gættu þess aðeins

að pússa perlurnar

í lífi þínu

svo þær fái notið sín,

því að í þeim

felst öll þín hamingja.

(Sigurbjörn Þorkelsson)

Með kærleiks- og friðarkveðju.

Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf.: Sigurbjörn Þorkelsson