Norður
♠ D874
♥ G532
♦ 85
♣ ÁKG
Vestur
♠ –
♥ 864
♦ G10964
♣ 87643
Austur
♠ KG9
♥ K109
♦ D732
♣ 1052
Suður
♠ Á106542
♥ ÁD7
♦ ÁK
♣ D9
Suður spilar 6♠.
„Enginn ætti að skrifa ævisögu sína meðan hann er enn á lífi,“ er haft eftir Samuel Goldwyn kvikmyndaframleiðanda (1879-1974). „Vel mælt,“ segir Gölturinn og leggur fyrir fuglana dæmigerða tímasetningarþraut – hálfslemmu í spaða með tígulgosa út.
„Er þetta tvímenningur eða sveitakeppni?“ Fuglarnir sáu strax hvað hékk á spýtunni.
„Annað hvort,“ svaraði Gölturinn í anda Goldwyns.
„Ókei.“ Óskar ugla reið á vaðið: „Í tvímenningi tek ég á spaðaás og fer niður með bros á vör í þessari legu. Ég ætla ekki að fá botn ef kóngurinn er blankur.“
„Og í sveitakeppni,“ tók Magnús mörgæs upp þráðinn, „byrja ég á því að kanna hjartastöðuna. Ef hjartasvíningin misheppnast legg ég næst niður spaðaás. Ef svíningin heppnast spila ég trompi úr borði á tíuna heima.“