Tímamót Þórhalla Eggertsdóttir fagnar 70 ára afmæli sínu á árinu.
Tímamót Þórhalla Eggertsdóttir fagnar 70 ára afmæli sínu á árinu.
Tímamót nefnist sýning sem Þórhalla Eggertsdóttir opnar í Gallerí Göngum á morgun, laugardag, milli kl. 14 og 17 í tilefni af 70 ára afmæli sínu. Í tilkynningu kemur fram að Þórhalla stundaði nám í listfræði við Háskóla Íslands og Listaháskóla…

Tímamót nefnist sýning sem Þórhalla Eggertsdóttir opnar í Gallerí Göngum á morgun, laugardag, milli kl. 14 og 17 í tilefni af 70 ára afmæli sínu. Í tilkynningu kemur fram að Þórhalla stundaði nám í listfræði við Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands 2000-2005 meðfram vinnu sinni sem skurðhjúkrunarfræðingur. Einnig sótti hún námskeið í grunnteikningu við Myndlistarskóla Reykjavíkur. Í framhaldinu sat hún svo margvísleg námskeið í olíumálun við skólann, allt til ársins 2015.

„Öll verk sýningarinnar eru olíumálverk sem flest eru unnin á síðustu tveimur árum. Þórhalla er mikill náttúruunnandi og útivistarkona sem endurspeglast gjarnan í verkum hennar, þó eru verkin oft á tíðum óhlutbundin af stað og stund. Þórhalla rekur vinnustofu á Grandagarði ásamt níu öðrum áhugamálurum,“ segir í tilkynningu.

Sýningin stendur til 17. mars. Þórhalla verður á staðnum alla laugardaga milli kl. 14 og 16 á meðan sýningin stendur yfir.