Þjálfari Hrannar Guðmundsson verður í Garðabænum næstu árin.
Þjálfari Hrannar Guðmundsson verður í Garðabænum næstu árin. — Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Handknattleiksþjálfarinn Hrannar Guðmundsson hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna til næstu tveggja ára en hann hefur stýrt karlaliði félagsins frá því í september á síðasta ári. Hrannar hefur einnig þjálfað hjá ÍR, Aftureldingu og yngri…

Handknattleiksþjálfarinn Hrannar Guðmundsson hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna til næstu tveggja ára en hann hefur stýrt karlaliði félagsins frá því í september á síðasta ári. Hrannar hefur einnig þjálfað hjá ÍR, Aftureldingu og yngri landsliðum Íslands en hann stýrði kvennaliði Stjörnunnar á síðustu leiktíð. Stjarnan situr í sjöunda sæti úrvalsdeildarinnar og þá tryggði liðið sér sæti í undanúrslitum bikarkeppninnar á dögunum.