Staðfest er að loðnuganga er á ferðinni suðaustur af landinu, en magnið sem fundist hefur gefur ekki tilefni til þess að loðnukvóti verði gefinn út að sinni. Þetta segir Guðmundur J. Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar, í samtali við Morgunblaðið.
Hafrannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson og uppsjávarskipið Polar Ammassak voru send í Rósagarðinn, fiskimið suðaustur af landinu, í fyrrakvöld, þar sem loðnu hafði orðið vart að því er talið var. Sýni úr göngunni náðust og staðfest er að um loðnu var að ræða.
„Það er ekki stór ganga þarna á ferðinni og hún er ekki að fara að breyta neinu,“ segir Guðmundur.
Þegar rætt var við hann síðdegis í gær átti Polar Ammassak eftir að leita á nokkrum leggjum á svæðinu og er gert ráð fyrir að þeirri leit ljúki í dag, en Bjarni Sæmundsson var farinn í önnur verkefni.
„Það sem við sjáum í stöðunni núna er að eitthvað geti gerst líkt og í fyrra þegar loðna lét sjá sig fyrir norðvestan land. Það er helst að eitthvað komi undan ísnum þar,“ segir Guðmundur, spurður um næstu skref.