Þýskaland Arnór Snær Óskarsson og Guðjón Valur Sigurðsson.
Þýskaland Arnór Snær Óskarsson og Guðjón Valur Sigurðsson. — Ljósmynd/Gummersbach
Íslendingalið Gummersbach í handknattleik hefur samið við Arnór Snæ Óskarsson um að leika með liðinu á láni út yfirstandandi tímabil. Arnór Snær kemur að láni frá öðru Íslendingaliði, Rhein-Neckar Lowen, þar sem tækifærin hafa verið af skornum skammti síðan hann kom frá Val síðasta sumar

Íslendingalið Gummersbach í handknattleik hefur samið við Arnór Snæ Óskarsson um að leika með liðinu á láni út yfirstandandi tímabil. Arnór Snær kemur að láni frá öðru Íslendingaliði, Rhein-Neckar Lowen, þar sem tækifærin hafa verið af skornum skammti síðan hann kom frá Val síðasta sumar. Hjá Gummersbach hittir Arnór Snær fyrir Elliða Snæ Viðarsson og þjálfarann Guðjón Val Sigurðsson. Arnór Snær leikur í stöðu hægri skyttu.