Samkeppniseftirlitið (SKE) er með til rannsóknar hvort samningur Landsvirkjunar (LV) við stórnotendur standist samkeppnislög og samkeppnisreglur EES-samningsins. Um er að ræða ákvæði sem kveður á um að stórnotendum sé ekki heimilt að selja frá sér ónýtta raforku aftur inn á kerfið

Samkeppniseftirlitið (SKE) er með til rannsóknar hvort samningur Landsvirkjunar (LV) við stórnotendur standist samkeppnislög og samkeppnisreglur EES-samningsins. Um er að ræða ákvæði sem kveður á um að stórnotendum sé ekki heimilt að selja frá sér ónýtta raforku aftur inn á kerfið.

Samkeppniseftirlitið segir í tilkynningu að takmarkanir sem þessar af hálfu markaðsráðandi fyrirtækis, sem Landsvirkjun kunni að vera, geti falið í sér brot á banni við misnotkun á markaðsráðandi stöðu samkvæmt ákvæðum samkeppnislaga og EES-samningsins.

Þannig geti þau verið til þess fallin að verja eða styrkja stöðu Landsvirkjunar á kostnað viðskiptavina og almennings. Brjóti samningsákvæði í bága við samkeppnislög teljast þau ógild samanber ákvæði samkeppnislaga. Samkeppniseftirlitið tilkynnti Landsvirkjun um rannsókn sína með bréfi dagsettu 9. febrúar í kjölfar þess að hafa óskað eftir upplýsingum um samningsákvæðin frá Landsvirkjun í nóvember í fyrra.

Í rannsókn sinni mun SKE skilgreina raforkumarkaðinn og meta stöðu Landsvirkjunar á honum. Verði fyrirtækið talið markaðsráðandi á raforkumarkaði mun Samkeppniseftirlitið meta hvort það hafi gerst brotlegt og telji eftirlitið að íþyngjandi ákvörðun kunni að verða tekin verður Landsvirkjun gefin kostur til andmæla.