Jarðvarmi Bandaríkjamenn horfa til reynslu og þekkingar hér.
Jarðvarmi Bandaríkjamenn horfa til reynslu og þekkingar hér. — Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Það er einlægur vilji Bandaríkjamanna að ganga til samstarfs við okkur á þessum vettvangi og við erum að opna línuna á milli stjórnvalda beggja landa í þessum málum. Þetta er tímamótasamkomulag, enda líta þeir til okkar sem einnar…

Ólafur E. Jóhannsson

oej@mbl.is

„Það er einlægur vilji Bandaríkjamanna að ganga til samstarfs við okkur á þessum vettvangi og við erum að opna línuna á milli stjórnvalda beggja landa í þessum málum. Þetta er tímamótasamkomulag, enda líta þeir til okkar sem einnar forystuþjóðar í heiminum á þessum vettvangi,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í samtali við Morgunblaðið.

Tvíhliða samstarfi Bandaríkjanna og Íslands á sviði orku- og loftslagsmála verður ýtt úr vör í dag á fundi Guðlaugs Þórs og Jennifer Granholm orkumálaráðherra Bandaríkjanna, sem komin er hingað til lands í þessum tilgangi.

Þróa leiðir til að virkja endurnýjanlega orku

Samstarfið verður á sviði jarðhita, upptöku, geymslu og nýtingar koldíoxíðs sem og framleiðslu á vetni og er markmið þess að liðka fyrir samstarfi hagsmunaaðila á þeim vettvangi til að þeir geti náð markmiðum sínum í loftslagsmálum, hraða samdrætti kolefnislosunar, efla orkuöryggi og þróa leiðir til að virkja endurnýjanlega orku.

„Við erum hér að opna línuna, frumkvæði að einstökum verkefnum á síðan að koma frá fyrirtækjunum, ekki stjórnvöldum. En í þessu felast mikil tækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf og háskólasamfélagið,“ segir Guðlaugur Þór. Hann segir að viðbrögð atvinnulífsins við þessum tíðindum séu mjög jákvæði, bæði hjá orkufyrirtækjum og fyrirtækjum í loftslagsmálum, verkefni þeirra sé að nýta þau tækifæri sem samstarfið býður upp á.

Einlægur vilji

„Það er gríðarlega mikilvægt að vera í beinum samskiptum við bandarísk stjórnvöld þegar kemur að því að koma verkefnum í framkvæmd, því það er erfitt fyrir einstaka aðila að athafna sig í Bandaríkjunum. Það er einlægur vilji bandarískra stjórnvalda að eiga þetta samstarf við okkur, því þeir vita að við erum í forystuhlutverki þegar kemur að nýtingu jarðvarmans og í loftslagsmálum sömuleiðis,“ segir Guðlaugur Þór.

Hann segir að mörg mjög áhugaverð verkefni blasi við á þessum vettvangi og litið sé til íslenskra fyrirtækja sem frumkvöðla í þessum efnum. » 16