Körfuboltamaðurinn Martin Hermannsson er í 16 manna landsliðshópi Íslands fyrir fyrstu tvo leiki liðsins í undankeppni EM 2025, sem var tilkynntur í gær. Mætir liðið Ungverjalandi 22. febrúar í Laugardalshöll og Tyrklandi ytra 25
Körfuboltamaðurinn Martin Hermannsson er í 16 manna landsliðshópi Íslands fyrir fyrstu tvo leiki liðsins í undankeppni EM 2025, sem var tilkynntur í gær. Mætir liðið Ungverjalandi 22. febrúar í Laugardalshöll og Tyrklandi ytra 25. febrúar. Martin hefur ekki leikið með landsliðinu frá því í febrúar 2022. Glímdi hann við langvinn meiðsli á síðasta ári og hefur þátttaka í EuroLeague með félagsliðum átt það til að koma í veg fyrir þátttöku hans í landsliðsverkefnum í gegnum árin.