Anton Guðmundsson
Anton Guðmundsson
Þeir hamfaratímar sem við lifum nú sýna mikilvægi þess að orkuinnviðir og auðlindir sem þessar séu í eigu sveitarfélaga og ríkisins.

Anton Guðmundsson

Hraun hefur nú runnið yfir heitavatnslögnina, svokallaða Njarðvíkuræð fyrir vatn frá Svartsengi að Fitjum. Atburðarásin var hraðari en nokkur sá fyrir eftir því sem fram kemur hjá almannavörnum. Nú blasir við gríðarlega alvarlegur skortur á heitu vatni í nokkra daga. Almannavarnir tala um mikilvægi þess að allir leggist á eitt á stundu sem þessari og fari sparlega með rafmagn. Heitavatnslaust er nú orðið í Suðurnesjabæ, Reykjanesbæ, Grindavík og Vogum. Brestur er orðinn í lífsgæðum og vinnur nú fjöldi starfsmanna og verktaka að því að koma veitukerfunum aftur í gang og er það fólk að vinna þrekvirki í störfum sínum og kann ég þeim bestu þakkir fyrir. Það er ekki sjálfgefið að eiga svona öflugt fólk sem bregst jafn hratt og örugglega við á hamfaratímum.

Hitaveitan samvinnuhugsjón í upphafi

Hitaveita Suðurnesja var stofnuð 31. desember 1974, með lögum frá Alþingi, í þeim tilgangi að nýta jarðvarmann til húshitunar á svæðinu. Við stofnun fyrirtækisins skiptust eignarhlutar í fyrirtækinu þannig að ríkissjóður átti 40% og sveitarfélögin sjö, sem þá voru á svæðinu, 60%.

Um mjög mikilvægt samvinnuverkefni var að ræða sem gjörbylti orkunýtingu á svæðinu á sínum tíma.

Einkavæðing grunninnviða

Önnur ríkisstjórn Geirs H. Haarde var ríkisstjórn Íslands frá 24. maí 2007 til 1. febrúar 2009. Í henni sátu ráðherrar frá Sjálfstæðisflokki og Samfylkingunni.

1. janúar 2007 var Hitaveita Suðurnesja, síðar HS Orka, að fullu í eigu sveitarfélaga á svæðinu og íslenska ríkisins. Á vormánuðum sama ár auglýsti ríkið 15,2% hlut sinn í fyrirtækinu til sölu. Öðrum orkufyrirtækjum á Íslandi var meinað að bjóða í hann, tónninn var sleginn, einkavæðing var hafin og sveitarfélögin losuðu sinn eignarhlut í kjölfarið og í dag er HS Orka til helminga í eigu lífeyrissjóða og fjárfestingafélagsins Ancala partners. Mikill arður hefur verið greiddur á síðustu árum út úr félaginu. Til dæmis árið 2021, þá greiddu eigendur HS Orku út 28 milljónir dala, um 3,6 milljarða króna, til hluthafa með lækkun hlutafjár í kjölfar hluthafafundar í nóvember það ár.

Orkuauðlindir landsins eiga að vera í samfélagslegri eigu

Þeir hamfaratímar sem við lifum nú sýna mikilvægi þess að orkuinnviðir og auðlindir sem þessar séu í eigu sveitarfélaga og ríkisins sem sjá um að reka og nýta grunnstoðir í samfélaginu, arðurinn sem skilar sér af slíkri innviðastarfsemi á síðan að fara markvist í uppbyggingu og varnir. Viljum við sem þjóð að arðgreiðsla af orkuauðlind sem þessari renni til einstaklinga eða að arðurinn sé nýttur til almunnahagsmuna?

Við sem þjóð eigum ekki að standa vörð um þann málflutning að einkavæðing orkuauðlinda og grunninnviða í samfélagi okkar sé sett á dagskrá. Persónulega er ég á móti því að virkjanir og orkumannvirki séu í einkaeigu. Það kemur svo sterkt í ljós núna að það á ekki að einkavæða þessa hluti, hvort sem það eru fossar eða virkjanir. Hægt hefði verið að nota allar þær arðgreiðslur sem hafa komið til á síðustu árum vegna orkuvinnslunnar í Svartsengi til frekari uppbyggingar innviða, t.d. að vera búin að leggja tvær varalagnir að Fitjum sem fæða Suðurnesjabæ, flugstöðina, Reykjarnesbæ og Voga. Einnig hefði verið hægt að fjármagna hluta varnagarðanna með fjármagni frá orkuvirkinu.

Við í Framsókn höfum talað skýrt í þessum efnum. Það er skoðun okkar að almennt eigi ríkið ekki að standa í hinum og þessum atvinnurekstri, en það er engum vafa undirorpið að opinbert eignarhald á innviðum sem þessum, t.d. Landsvirkjun, hefur reynst þjóðinni farsælt og er í raun til fyrirmyndar, táknmynd þess blandaða markaðshagkerfis sem við búum í. Í stefnu Framsóknar í atvinnumálum má finna kafla um Landsvirkjun en þar segir: „Framsókn leggst alfarið gegn sölu á Landsvirkjun, að hluta eða að öllu leyti. Almenningur á að njóta hins mikla arðs sem Landsvirkjun mun skila um ókomin ár. Brýnt er að tengja arðgreiðslur við auðlindina. Landsvirkjun gegnir lykilhlutverki í nýtingu hreinna og endurnýjanlegra orkugjafa til framtíðar til hagsældar fyrir íslenska þjóð.“

Auka þarf samvinnu með það að leiðarljósi að styrkja grunnstoðir landsins í jarðhita- og raforkumálum, styrkja þarf dreifikerfi raforku og auka vatnsaflsvirkjanir. Einnig þurfum við að auka fé til rannsókna og jarðhitakannana til að breikka nýtingarkosti jarðvarma á Íslandi.

Orð fjármálaráðherra hræða

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra skrifaði um mikilvægi einföldunar og hagræðingar í rekstri ríkisins í sérblaði Viðskiptablaðsins um Viðskiptaþing, sem kom út á dögunum. Hún nefnir nokkrar aðgerðir sem ríkið ætti að ráðast í; hún vill selja Íslandspóst, ljúka sölunni á hlut ríkisins í Íslandsbanka og nýta andvirði sölunnar til að bregðast við eldsumbrotum nálægt byggð, til lengri og skemmri tíma. Enn á ný á að hjóla í grunnstoðir samfélagsins með einkavæðingu. Við þurfum sem þjóð að gæta að hagsmunum samfélagsins í heild og setja samvinnuhugsjónir í forgrunn því þær eiga erindi við þjóðina.

Höfundur er oddviti Framsóknar í Suðurnesjabæ og formaður bæjarráðs.

Höf.: Anton Guðmundsson