Bomba Oppenheimer, hin vinsæla kvikmynd Christophers Nolans, jók áhuga almennings á kjarnorkusprengjum á síðasta ári. Meðal persóna þar er sjálfur Albert Einstein og nú hyggst Netflix hamra járnið meðan það er heitt og í gær kom þangað inn ný…
Bomba Oppenheimer, hin vinsæla kvikmynd Christophers Nolans, jók áhuga almennings á kjarnorkusprengjum á síðasta ári. Meðal persóna þar er sjálfur Albert Einstein og nú hyggst Netflix hamra járnið meðan það er heitt og í gær kom þangað inn ný heimildarmynd um Einstein og afstöðu hans til Manhattan-verkefnisins og kjarnorkusprengjunnar. Sitthvað fleira ber víst á góma en myndin er víst að hluta til leikin.