„Logn var veðurs“ er kunn veðurlýsing úr sögu Ólafs helga í Heimskringlu þar sem segir af því er konungur fór með her manna til Hringis­akurs og tók Hrærek konung. Hann sendi Ólafur síðar til Íslands í útlegð með þeirri fororðningu að Hrærekur kæmi…

„Logn var veðurs“ er kunn veðurlýsing úr sögu Ólafs helga í Heimskringlu þar sem segir af því er konungur fór með her manna til Hringis­akurs og tók Hrærek konung. Hann sendi Ólafur síðar til Íslands í útlegð með þeirri fororðningu að Hrærekur kæmi aldrei síðan lífs til Noregs og dó hann á bænum Kálfskinni. Myndin er frá Húsavíkurhöfn þar sem sléttur flötur flóans speglar himinblámann.