Norður
♠ 7532
♥ Á7
♦ K8764
♣ G8
Vestur
♠ Á6
♥ 109863
♦ G52
♣ 764
Austur
♠ DG1084
♥ D
♦ 10
♣ ÁK10953
Suður
♠ K9
♥ KG542
♦ ÁD93
♣ D2
Suður spilar 3G.
Einstaka sinnum fær Gölturinn sagnfræðilega fyrirspurn í tölvupósti: „Kæri Göltur. Fyrirgefðu framhleypnina en mig langar að spyrja þig að svolitlu. Nýlega horfði ég á erlendan landsliðsmann opna á 1♠ með fimmlit þótt hann ætti sexlit til hliðar í laufi. Er það rétt?“
„Rétt og ekki rétt,“ skrifaði Gölturinn til baka og hálfpartinn fór hjá sér við þessa vinsamlegu athygli. „En alla vega – ef maður opnar á laufi þá þarf að tvísegja spaðann á eftir til að sannfæra makker um fimmlit. Og það tekur tíma.“
Það var Hollendingurinn Bob Drijver sem opnaði á 1♠ í austur eftir pass tveggja fyrstu manna. Suður kom inn á grandi og norður stökk í þrjú grönd! Vörnin getur tekið 11 fyrstu slagina með laufi út og spaða til baka, en Ricco van Prooijen byrjaði á spaðaás og meiri spaða. Og þar með voru níu slagir mættir.