Sá sem verður einhvers var tekur eftir því, veitir því athygli, skynjar það eða finnur. En þarna er þess að gæta að sá er karlkyns
Sá sem verður einhvers var tekur eftir því, veitir því athygli, skynjar það eða finnur. En þarna er þess að gæta að sá er karlkyns. Hefði þar staðið sú hefði hún orðið einhvers vör, ekki „var“. Og barn eða fólk – það – hefði orðið einhvers vart. „Hún sagði að hún hefði orðið einskis var“ skilst – en er óþarfa karllægni.