Ástráður Haraldsson
Ástráður Haraldsson
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari hefur ekki enn boðað forystu breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins til sáttafundar en málin gætu þó skýrst fljótlega. „Ég á fastlega von á því að það muni gerast á næstu dögum,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið

Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari hefur ekki enn boðað forystu breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins til sáttafundar en málin gætu þó skýrst fljótlega. „Ég á fastlega von á því að það muni gerast á næstu dögum,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið.

Ástráður kvaðst í gær lítið geta sagt um stöðuna í kjaradeilunni á þessu stigi.

„Ég veit að aðilarnir hafa verið í samskiptum og geri mér vonir um að það leiði til þess að við förum að geta leitt þetta saman með árangri en meira veit ég í rauninni ekki,“ sagði Ástráður. omfr@mbl.is