Hönnuðirnir hjá Mercedes-Benz leyfa rómantísku hliðinni að njóta sín í nýrri sérútgáfu af G-Class-jeppanum. Útfærslan hefur fengið nafnið „Stronger Than Diamonds“ og verða aðeins 300 eintök seld á heimsvísu
Hönnuðirnir hjá Mercedes-Benz leyfa rómantísku hliðinni að njóta sín í nýrri sérútgáfu af G-Class-jeppanum.
Útfærslan hefur fengið nafnið „Stronger Than Diamonds“ og verða aðeins 300 eintök seld á heimsvísu.
Var þessi sérútgáfa kynnt á Valentínusardaginn og skartar sérblönduðu bleiku lakki sem Mercedes-Benz mun aðeins nota í þetta skipti. Þá skarta hurðalæsingatakkar bílsins 0,25 karata demanti og handföngin að utanverðu eru skreytt með demantsmynstri. Lykillinn að bílnum er líka sérhannaður og skreyttur með útlínum demants á silfurskildi. ai@mbl.is