Karlmaður á tvítugsaldri rændi í gær konu á sjötugsaldri í Mjódd. Konan var þar stödd að taka út peninga í hraðbanka þegar maðurinn hrifsaði af henni veskið og hlóp á brott.
Þóra Jónasdóttir stöðvarstjóri hjá lögreglunni staðfestir þetta.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu ógnaði maðurinn konunni ekki og voru heldur engin vopn notuð við ránið.
Konan fór sjálf á eftir manninum og fann veskið sitt. Hún slasaðist ekki en að sögn Þóru er konan sjálfsagt skelkuð.
Lögreglan hefur ekki haft hendur í hári þess grunaða og rannsakar málið nú. Að sögn Þóru eru glæpir sem þessi ekki algengir.