Hany Hadaya hefur verið ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Íslenska dansflokksins og mun hann jafnframt sjá um fræðslumál. Í tilkynningu segir að undanfarin sex ár hafi Hany unnið sem markaðsstjóri og hönnuður hjá stóru dansstúdíói í Kaupmannahöfn

Hany Hadaya hefur verið ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Íslenska dansflokksins og mun hann jafnframt sjá um fræðslumál.

Í tilkynningu segir að undanfarin sex ár hafi Hany unnið sem markaðsstjóri og hönnuður hjá stóru dansstúdíói í Kaupmannahöfn. Hann er með gráðu í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands og diplóma í rafrænni markaðssetningu frá Bigum&Co í Kaupmannahöfn.

Hany er frá Vínarborg í Austurríki en hefur búið á Íslandi í mörg ár. Hann starfaði sem dansari hjá Íslenska dansflokknum í sjö ár eftir að hann flutti til Íslands að loknu ballettnámi í Hollandi.