Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, fór hamförum með franska liðinu Nantes í gærkvöld þegar það vann Zabrze frá Póllandi í Evrópudeildinni á heimavelli sínum, 31:23. Viktor var með 44 prósent markvörslu en hann varði 17 af 39 skotum sem hann fékk á sig
Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, fór hamförum með franska liðinu Nantes í gærkvöld þegar það vann Zabrze frá Póllandi í Evrópudeildinni á heimavelli sínum, 31:23. Viktor var með 44 prósent markvörslu en hann varði 17 af 39 skotum sem hann fékk á sig.
Orri Freyr Þorkelsson skoraði fjögur mörk fyrir Sporting frá Portúgal sem vann óvæntan útisigur á toppliði Þýskalands, Füchse Berlín, 32:31.