Nú styttist í að skila þurfi inn skattframtölum en ríkisskattstjóri opnar fyrir framtalsskil einstaklinga 1. mars. Verður skilafrestur gefinn til 14. mars.
Á vef skattsins er greint frá því að spjallmennið Askur muni geta aðstoðað með því að svara ýmsum spurningum um framtalið. Þá verður einnig boðið upp á framtalsaðstoð í síma og hægt verður að senda fyrirspurnir á netfangið framtal@skatturinn.is.
Hægt er að nálgast framtalsleiðbeiningar á vef skattsins ásamt bæklingi með einföldum framtalsleiðbeiningum þar sem stiklað er á stóru yfir það helsta sem huga þarf að við skil á skattframtali.