Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,4% á milli mánaða. Þetta kemur fram á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Síðastliðna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 0,9 prósent og síðastliðna sex mánuði hækkaði hún um 4,0 prósent.
Á ársgrundvelli hefur vísitalan lækkað um 1,2% að raunvirði, þar sem nafnverðshækkun hennar hefur verið undir verðbólgu. Þetta er tíundi mánuðurinn í röð sem árshækkun vísitölunnar hefur ekki haldið í við almennar verðhækkanir.
Þrátt fyrir raunverðslækkanir hefur aukinn kraftur mælst í verðhækkunum á íbúðaverði frá miðju síðasta ári, samhliða því sem verðbólga hefur minnkað. Enn mælast árshækkanirnar undir verðbólgu, en ef þróunin helst óbreytt á milli mánaða má búast við íbúðaverðshækkunum umfram verðbólgu á næstu mánuðum að því er fram kemur á vef HMS.
Sérbýlishluti vísitölunnar hækkaði um 0,1 prósent milli mánaða. Fjölbýlishluti vísitölunnar hækkaði um 0,4 stig milli mánaða.