ÍA Erik Sandberg hefur leikið 31 leik í norsku úrvalsdeildinni.
ÍA Erik Sandberg hefur leikið 31 leik í norsku úrvalsdeildinni. — Ljósmynd/ÍA
Erik Sandberg, knattspyrnumaður frá Noregi, er genginn til liðs við Skagamenn og hefur samið við þá til tveggja ára. Sandberg er 23 ára varnarmaður og kemur frá Jerv þar sem hann hefur leikið í þrjú ár, tvö í norsku B-deildinni og eitt í úrvalsdeildinni

Erik Sandberg, knattspyrnumaður frá Noregi, er genginn til liðs við Skagamenn og hefur samið við þá til tveggja ára. Sandberg er 23 ára varnarmaður og kemur frá Jerv þar sem hann hefur leikið í þrjú ár, tvö í norsku B-deildinni og eitt í úrvalsdeildinni. Áður lék hann með Lilleström í úrvalsdeildinni og var í stuttan tíma á láni hjá Skeid í B-deildinni. Samtals á Sandberg að baki 90 deildaleiki og þá lék hann 64 leiki með yngri landsliðum Noregs.