Að koma e-u heim og saman er að fá e-ð til að standa heima, vera í samræmi. Það sem kemur heim og saman er í samræmi, stemmir; komi það illa eða ekki heim og saman er það ekki í samræmi, það stangast…

koma e-u heim og saman er að fá e-ð til að standa heima, vera í samræmi. Það sem kemur heim og saman er í samræmi, stemmir; komi það illa eða ekki heim og saman er það ekki í samræmi, það stangast á. Það sem „fer ekki heim og saman með skýrslunni“ kemur ekki heim og saman við hana, stangast á við hana.