Vilhjálmur Bjarnason
Vilhjálmur Bjarnason
Innan flokks er vinátta engin viðskipti með kærleika. Skrifari lærði nokkuð og kynntist ýmsu. Svo sem því að heilindi eru ekki til. En svik og lygi.

Vilhjálmur Bjarnason

Eitt sinn tók skrifari þátt í starfi stjórnmálaflokks. Þar kom að ekki var lengur þörf fyrir skrifara innan þingflokks þess flokks. Innan flokks er vinátta engin viðskipti með kærleika. Skrifari lærði nokkuð og kynntist ýmsu. Svo sem því að heilindi eru ekki til. En svik og lygi.

Annað lærði skrifari og það er að stjórnmálaflokkar mæla eftirspurn sína. Til hverra höfðar flokkur hverju sinni. Hvert er fastafylgið og hvert er mögulegt lausafylgi. Það leiðir hugann að spurningu um að vera aðlaðandi og aflaðandi.

Og að sjálfsögðu setur varan sem er á boðstólum svip eða svipleysi á tilveruna. Er varan eftirsóknarverð eins og Louis Vuitton-handtaska?

Markaðsfræði

Auðvitað leiðir þetta hugann að markaðsfræði. Öllu framboði er mætt með eftirspurn. Í markaðsfræði er fjallað um grunnatriði og samkvæmt kennslubókinni eru grunnatriðin einungis fjögur. Þau eru varan, verðið, kynningin og staðurinn. Gagnvart þessu stendur fólkið. Stjórnmálaflokki má líkja við verksmiðju og verslun. Stjórnmálaflokkur þarf að bjóða fram eitthvað sem skiptir kjósandann máli.

Í íslensku gildir endarímið, en enska rímar að framan, öll þessi orð byrja á P á ensku. Framboðið beinist að fólkinu. Eftirspurnin er frá fólkinu. Er framboðið aðlaðandi?

Til þess að vara og þjónusta sé seljanleg er það grundvallaratriði að varan og þjónustan sé aðlaðandi en ekki aflaðandi. Hefur stjórnmálaflokkur eitthvað fram að færa? Er það gott fyrir Flokkinn? Það var algeng spurning á þingtíma skrifara. Sjaldnast var spurt: Er það gott fyrir fólkið? Flokkur og fólk rímar að framan!

Þjónusta stjórnmálaflokks beinist að fólkinu í landinu. Það þarf þor til að hafa víðsýni og framsýni.

Hefur Sjálfstæðisflokkurinn metið sig á mælikvarða markaðsfræðinnar?

Eitt sinn voru það talin viðurkennd sannindi að fastafylgi Sjálfstæðisflokksins væri 35% og kjörfylgi yfir 40%, en síðar var fastafylgi komið í 22%. Þá var kjörfylgi Sjálfstæðisflokksins 33%.

Og hvert er fylgið núna samkvæmt skoðanakönnunum? Síðasta mæling Gallup segir 18,2%. Helmingur fylgis er horfinn!

Aðlaðandi hugmyndafræði í sóttvörnum?

Hin borgaralegu öfl hafa staðið saman í flestu því sem til framfara hefur horft. Samstaðan byggist á umburðarlyndi en ekki alræði. Landsfundur getur ekki ályktað í „aldrei“- og „skal“-stíl. Hin borgaralegu öfl hafa haft framsýni til að semja Ísland að alþjóðlegri samvinnu.

Enginn stjórnmálaflokkur nema Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt aðild að landsstjórn þar sem aðild að öllum grundvallaralþjóðasamningum hefur verið samþykkt. Það ber vott um styrkleika og framsýni.

Hvert er svo framboðið í hugmyndafræði hinna borgaralegu afla í dag?

Frelsisunnendur hinna borgaralegu afla leggja til að rannsaka skert mannréttindi í heimsfaraldri covid. Kann að vera að alfrelsisfólk telji þetta verðugt rannsóknarefni. Þeir sem veiktust alvarlega og þeir sem misstu nákomna ættingja og vandamenn í heimsfaraldri spyrja um raunveruleikaskyn þeirra sem hafa sérlegan áhuga á mannréttindum umfram sóttvarnir. Hvað fást mörg atkvæði í lausafylgi fyrir þetta merkilega frumkvæði?

Það er fremur rannsóknarefni hvernig tókst til að verja landsbúann í faraldrinum. En hvað með frelsisskerðingu til atvinnu í fiskveiðistjórnarlögum?

Aðlaðandi hugmyndafræði um sölu ríkiseigna?

Annað þingmál fjallar um „sölu ríkiseigna, lækkun skulda ríkissjóðs og fjárfestingu í innviðum“.

Þetta þingmál er flutt í skugga umræðna um sölu á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka hf. Faðir formanns Sjálfstæðisflokksins keypti hlut í Íslandsbanka hf. í blindu útboði til hæfra fjárfesta, sbr. lög nr. 161/2002.

Í stað þess að sýna auðmýkt og láta föður sinn falla frá kaupum á hlut í Íslandsbanka hf. forhertist formaður Sjálfstæðisflokksins og sagði föður sinn hafa mátt kaupa þennan hlut. Afleiðingin er fylgishrun Sjálfstæðisflokksins í skoðanakönnunum.

Það eru ekki margar ríkiseignir sem geta talist vænleg söluvara.

Eignirnar eru:

Landsvirkjun

Landsbanki Íslands hf.

Hluti af Isavia, þ.e. Flugstöð Leifs Eiríkssonar, nema vilji sé til að selja leiðsögukerfið um Norður-Atlantshaf.

Stjórnarráðið við Lækjartorg. Húsið er talið eign ríkissjóðs en ekki eru til þinglýstar heimildir um það.

Og hvað þegar þessar eignir eru seldar í eitt skipti? Ekki verður það endurtekið.

Flugstöð Leifs Eiríkssonar (FLE) hefur nokkra sérstöðu meðal þessara eigna. Íslenska ríkið lagði aldrei fram eina krónu til byggingar FLE. Á móti framlagi Bandaríkjamanna til byggingar varnarmannvirkis komu lán sem íslenska ríkið tók til að greiða sinn kostnað. Þau lán voru yfirtekin af opinberu hlutafélagi, Flugstöð Leifs Eiríkssonar ohf., en það félag gekk inn í Isavia ohf.

Það er hægt að selja Stjórnarráðshúsið og leigja til baka! Gjörningur líkist eilífðarláni.

Er þetta efnilegt framlag til að efla fylgi meðal borgaralegra afla?

Verður Sjálfstæðisflokkurinn til á 100 ára afmælinu?

Það er alls ekki gefið mál að Sjálfstæðisflokkurinn verði til á 100 ára afmæli flokksins, sem verður hinn 25. maí 2029, ef örlögin taka ekki í taumana. Samband íslenskra samvinnufélaga, sem talið var eiga eilífan aldur, hvarf án þess að nokkur maður saknaði þess.

Fjöldi fólks veit aðeins um tvo af þingmönnum flokksins og einhverjir hafa heyrt af dómsmálaráðherranum vegna útlendingamála.

Er það vegna svipleysis? Eða lítt aðlaðandi!

Ritari flokksins lætur ýmislegt fjúka sem ekki þykir þaulhugsað til dala. Þannig má skilja ritarann, að eindrægni vaxi í flokknum með minnkandi fylgi. Auðvitað fækkar deiluefnum með dvínandi kjörfylgi. Þannig að ekki ræður markaðsfræðin með sókn í fjöldafylgi för.

En víðsýnin vex ekki. Og ekki alltaf aðlaðandi umfjöllun!

Enn er rétt að minna á hvað Guðbjartur bóndi segir: „Maður fer á mis við lífið þángaðtil maður er sjálfstæður. Fólk sem er ekki sjálfstæðisfólk, það er ekki fólk.“

Höfundur var alþingismaður.