[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Heiði Á rúmlega 4,6 hektara lóð við Heiði stendur glæsilegt 401 fm einbýli með stórbrotnu útsýni yfir Akureyri og Eyjafjörðinn. Húsið var reist árið 2006 og er á tveimur hæðum. Sjarmerandi gluggar úr timbri með álklæðningu að utanverðu setja svip sinn á eignina

Heiði

Á rúmlega 4,6 hektara lóð við Heiði stendur glæsilegt 401 fm einbýli með stórbrotnu útsýni yfir Akureyri og Eyjafjörðinn. Húsið var reist árið 2006 og er á tveimur hæðum. Sjarmerandi gluggar úr timbri með álklæðningu að utanverðu setja svip sinn á eignina. Óskað er eftir tilboði í eignina, en fasteignamatið er skráð 110.300.000 kr. og brunabótamatið 188.550.000 kr.

Baugholt 13

Við Baugholt í Reykjanesbæ er að finna sérlega fallegt 398 fm einbýlishús sem Kjartan Sveinsson teiknaði. Húsið var reist árið 1975 en hefur á undanförnum árum fengið heilmiklar endurbætur. Við húsið er snyrtilegur garður með sjarmerandi steyptum sólpalli, og þar er útisundlaug sem gefur eigninni án efa mikið lúxusyfirbragð. Ásett verð er 164.000.000 kr.

Duggufjara 6

Við Duggufjöru á Akureyri er 297 fm glæsihús á tveimur hæðum sem reist var árið 1990. Húsið stendur á fallegum stað við tjörnina í Innbænum. Árið 1996 var ráðist í miklar framkvæmdir á húsinu og það nánast endurbyggt. Óskað er eftir tilboði í eignina, en fasteignamatið er skráð 142.000.000 kr. og brunabótamatið 172.700.000 kr.

Klettagerði 6

Við Klettagerði á Akureyri stendur tignarlegt 399 fm einbýli sem var byggt árið 1972. Húsið er teiknað af Knúti Jeppesen arkitekt, en hann sótti innblástur til Norræna hússins. Að utan er húsið hraunað með gluggakörmum í oxírauðum lit sem á rætur sínar að rekja til Svíþjóðar. Ásett verð er 159.900.000 kr.

Ásabyggð 8

Við Ásabyggð á Akureyri er að finna glæsilegt 372 fm einbýlishús á tveimur hæðum sem reist var árið 1983. Húsið stendur á grónum stað á Brekkunni. Fallegir gluggar gefa eigninni mikinn karakter sem og skemmtilegt form hússins, en í garðinum er steypt verönd með heitum potti. Ásett verð er 172.400.000 kr.

Höf.: Irja Gröndal |