Svíþjóð Aldís Ásta Heimisdóttir er í toppbaráttu með Skara.
Svíþjóð Aldís Ásta Heimisdóttir er í toppbaráttu með Skara. — Ljósmynd/Skara
Handknattleikskonan Aldís Ásta Heimisdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við sænska úrvalsdeildarfélagið Skara sem gildir til sumarsins 2025. Fyrri samningur Aldísar Ástu, sem hefur leikið afar vel fyrir Skara á tímabilinu, átti að renna út í…

Handknattleikskonan Aldís Ásta Heimisdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við sænska úrvalsdeildarfélagið Skara sem gildir til sumarsins 2025. Fyrri samningur Aldísar Ástu, sem hefur leikið afar vel fyrir Skara á tímabilinu, átti að renna út í sumar og verður hún því að minnsta kosti eitt tímabil til viðbótar hjá félaginu. Skara er í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar og nær öruggt með sæti í átta liða úrslitum um sænska meistaratitilinn.