NFL-leikmaðurinn Jason Kelce settist niður með hlaðvarpsstjórnandanum Shaquille O’Neal á dögunum þar sem þeir ræddu saman um lífið og tilveruna. Í þættinum lagði O’Neal kollega sínum lífsreglurnar og ráðlagði honum að halda sér á…

NFL-leikmaðurinn Jason Kelce settist niður með hlaðvarpsstjórnandanum Shaquille O’Neal á dögunum þar sem þeir ræddu saman um lífið og tilveruna. Í þættinum lagði O’Neal kollega sínum lífsreglurnar og ráðlagði honum að halda sér á jörðinni og huga vel að fjölskyldunni í stað þess að elta frægðarljómann. Vildi O’Neal forða Kelce frá þeim mistökum sem hann sjálfur gerði og urðu til þess að hann missti alla fjölskyldu sína frá sér. Í dag segist hann óendanlega þakklátur fyrrverandi eiginkonum sínum fyrir að hafa fyrirgefið honum eigingirnina og vitleysuna. O’Neal á fimm börn með tveimur frábærum konum sem öll eru virkir þátttakendur hvert í lífi annars, líkt og góðum fjölskyldum sæmir sem ganga í gegnum súrt og sætt saman. Jason Kelce á þrjú börn með eiginkonu sinni og því er óskandi að hann fari eftir ráðum O’Neals í einu og öllu, nú sem endranær. Nánar á K100.is