Jennifer Lopez fer mikinn þessa dagana.
Jennifer Lopez fer mikinn þessa dagana. — AFP/Robyn Beck
Afköst Bandaríska leikkonan, söngkonan og dansarinn Jennifer Lopez situr ekki auðum höndum – fremur en endranær. Á dögunum sendi hún frá sér sína níundu hljóðversplötu, This Is Me … Now, og á sama tíma kom ný kvikmynd inn á Amazon Prime Video, This…

Afköst Bandaríska leikkonan, söngkonan og dansarinn Jennifer Lopez situr ekki auðum höndum – fremur en endranær. Á dögunum sendi hún frá sér sína níundu hljóðversplötu, This Is Me … Now, og á sama tíma kom ný kvikmynd inn á Amazon Prime Video, This Is Me … Now: A Love Story, sem ku vera einskonar blanda af rómans og hasar. Hvort tveggja mun vera innblásið af endurnýjuðu ástarsambandi Lopez og leikarans Bens Afflecks. Í umsögn BBC um myndina segir að hún sé galin en verðskuldi virðingu áhorfenda. Leikstjóri er Dave Meyers. Ekki nóg með það; Lopez hefur lokið við að leika í tveimur öðrum myndum, Atlas og Unstoppable, sem koma senn.