line-height:150%">Margir mundu vilja lifa það að stjórnvöld létu afhjúpa styttu af þeim við hátíðlega athöfn. Hvort sem sögnin að afhjúpa merkir að taka hjúp af, t.d

Margir mundu vilja lifa það að stjórnvöld létu afhjúpa styttu af þeim við hátíðlega athöfn. Hvort sem sögnin að afhjúpa merkir að taka hjúp af, t.d. af styttu, eða ljóstra upp: afhjúpa samsæri, er það sem afhjúpað er alltaf í þolfalli og hætt er við að allt fari í handaskolum ef reynt er að „afhjúpa styttunni“ eða „samsærinu“.