Eitt verkanna á sýningunni.
Eitt verkanna á sýningunni.
Íkveikja / Incendiary nefnist sýning sem opnuð verður í Núllinu Gallery við Bankastræti 0 á morgun. „Myndlistar­mennirnir Amanda Tyahur, Ágústa Björnsdóttir og Þórarinn Ingi Jónsson sýna þar verk á sýningu sem aðeins stendur í fjóra daga

Íkveikja / Incendiary nefnist sýning sem opnuð verður í Núllinu Gallery við Bankastræti 0 á morgun. „Myndlistar­mennirnir Amanda Tyahur, Ágústa Björnsdóttir og Þórarinn Ingi Jónsson sýna þar verk á sýningu sem aðeins stendur í fjóra daga. Listamennirnir og verkin koma úr mismunandi áttum en eldurinn sameinar þau öll. Á sýningunni verða málverk, skúlptúrar og teikningar,“ segir í viðburðarkynningu. Sýningin stendur til 28. febrúar. Á morgun er hún opin milli kl. 14 og 20, en virku dagana milli kl. 16 og 20.