Níu lögmenn frá átta lögfræðistofum rita sameiginlega grein í Morgunblaðinu í dag þar sem starfshættir Skattsins eru harðlega gagnrýndir. Vinnubrögðin beri ekki merki um lögmæta, gagnsæja og vandaða stjórnsýslu

Níu lögmenn frá átta lögfræðistofum rita sameiginlega grein í Morgunblaðinu í dag þar sem starfshættir Skattsins eru harðlega gagnrýndir. Vinnubrögðin beri ekki merki um lögmæta, gagnsæja og vandaða stjórnsýslu.

Er fjármálaráðherra hvattur til að grípa til viðeigandi ráðstafana til að endurvekja traust til Skattsins, sem ráðherra beri ábyrgð á. Leita þurfi leiða til að auka fyrirsjáanleika í íslensku skattumhverfi. » 36