Sorpa Mun dýrara er að losa sig við úrgang í Álfsnesi en áður.
Sorpa Mun dýrara er að losa sig við úrgang í Álfsnesi en áður. — Morgunblaðið/Styrmir Kári
Gjald sem Sorpa innheimtir vegna förgunar olíumengaðs úrgangs sem urðaður er í Álfsnesi, svo sem vökva úr sand- og olíuskiljum bílaþvottastöðva, hækkaði um tæplega 130% um sl. áramót, fór úr 21,88 krónum á kílóið í 49,96 krónur án vsk

Gjald sem Sorpa innheimtir vegna förgunar olíumengaðs úrgangs sem urðaður er í Álfsnesi, svo sem vökva úr sand- og olíuskiljum bílaþvottastöðva, hækkaði um tæplega 130% um sl. áramót, fór úr 21,88 krónum á kílóið í 49,96 krónur án vsk.

Hörður Ingi Þórbjörnsson rekstrarstjóri Löðurs segir í samtali við Morgunblaðið að tveir verktakar starfi fyrir fyrirtækið sem safni saman þessum úrgangi og komi honum í Álfsnes. Algengt er að fluttir séu 5.000 til 7.500 lítrar hvert sinn og nemur kostnaður eftir hækkun 249.800 til 374.000 krónum og er hækkunin á bilinu 140.400 til 209.000 krónur fyrir farminn. Aðrir kostnaðarliðir hafa ekki hækkað.

„Þetta breytir rekstrarforsendum okkar. Við reynum að halda sama verði, en þetta er mikill kostnaður og við þurfum að bregðast við og þurfum að leita leiða til þess að láta okkar trygga kúnnahóp ekki standa undir þessu,“ segir Hörður Ingi.

„Þetta er ekki hvetjandi fyrir starfsemi eins og okkar þar sem skiptir gríðarlegu máli að huga að umhverfisvörnum. Við erum að verjast því að fá þessi efni út í umhverfið,“ segir Hörður Ingi sem segir þetta íþyngjandi fyrir reksturinn.

Um sl. áramót hækkaði einnig gjald vegna móttöku á fitu úr 33,11 krónum á kílóið í 70 krónur, eða um 111%, og er hækkunin tilkomin vegna banns við urðun lífræns úrgangs í Álfsnesi, skv. upplýsingum frá Sorpu, sem gefur og þær skýringar á hækkun gjalds vegna olíumengaðs úrgangs að minnkun hafi orðið á magni til urðunar og hún sé því óhagkvæmari en áður.

Fita er meðhöndluð þannig að vatn er skilið frá henni í Gufunesi. Eins og sakir standa er farið með hana í Kölku á Reykjanesi þar sem hún er brennd. Ekki er hægt að koma þangað með efni fyrr en eftir kl. 16 sem leiðir til þess að fita sem er losuð að morgni situr í bílnum sem hana flytur allan daginn með tilheyrandi kostnaði.
» 30