Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar rán við hraðbanka í vikunni. Þjófarnir, þrír karlar og ein kona, náðu korti af viðskiptavini Landsbankans og þar sem þeir höfðu komist yfir PIN-númerið náðu þeir að taka út rúmlega 200 þúsund krónur af kortinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar rán við hraðbanka í vikunni. Þjófarnir, þrír karlar og ein kona, náðu korti af viðskiptavini Landsbankans og þar sem þeir höfðu komist yfir PIN-númerið náðu þeir að taka út rúmlega 200 þúsund krónur af kortinu. Landsbankinn greindi fyrst frá málinu í tilkynningu.

„Þetta mál er í fullri rannsókn og við erum að reyna að bera kennsl á fólkið en við erum að fara yfir myndefni af þessum aðilum,“ segir Heimir Ríkharðsson lögreglufulltrúi við mbl.is. Hann segir ránið þaulskipulagt.

„Við viljum brýna fyrir fólki að gæta þess að enginn geti séð PIN-númerið þegar það er slegið inn í hraðbankann og hafa varann á sér gagnvart öðru fólki þegar úttekt er framkvæmd,“ segir Heimir.