Tíu manns að minnsta kosti létust þegar fjórtán hæða fjölbýlishús brann í borginni Valencia á Spáni síðdegis á fimmtudag. Sérfræðingar segja að klæðning hússins hafi verið afar eldfim, sem skýri hvers vegna húsið varð alelda á skammri stundu
Tíu manns að minnsta kosti létust þegar fjórtán hæða fjölbýlishús brann í borginni Valencia á Spáni síðdegis á fimmtudag.
Sérfræðingar segja að klæðning hússins hafi verið afar eldfim, sem skýri hvers vegna húsið varð alelda á skammri stundu. Ekki hefur enn verið hægt að kanna brunarústirnar nákvæmlega vegna mikils hita og reyks.