Grótta vann öruggan sigur á Víkingi í úrvalsdeild karla í handknattleik í gærkvöld þegar liðin mættust á Seltjarnarnesi en lokatölur urðu 32:24.
Þar með komst Grótta að hlið Stjörnunnar í sjöunda og áttunda sæti en Víkingar eru áfram næstneðstir í deildinni.
Grótta náði undirtökunum í fyrri hálfleik og staðan var 14:11 að honum loknum. Seltirningar skoruðu síðan þrjú fyrstu mörk síðari hálfleiks, 17:11, og héldu því forskoti að mestu leikinn á enda.
Jakob Ingi Stefánsson skoraði fimm mörk fyrir Gróttu, Ágúst Emil Grétarsson og Jón Ómar Gíslason fjögur mörk hvor. Jóhann Reynir Gunnlaugsson var markahæstur Víkinga með fimm mörk.