1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 d5 4. cxd5 exd5 5. Bg5 Be7 6. e3 h6 7. Bh4 b6 8. Bd3 Bb7 9. Dc2 Rbd7 10. Rf3 c5 11. 0-0 0-0 12. Hac1 Hc8 13. Bf5 cxd4 14. exd4 Re4 15. Bxe7 Dxe7 16. Re5
Staðan kom upp á Íslandsmóti 65 ára og eldri sem lauk fyrir skömmu í Siglingaklúbbnum Ými í Kópavogi. Sigurvegari mótsins, Ögmundur Kristinsson (1.938), hafði svart gegn Björgvini Víglundssyni (2.166). 16. … Rxe5! 17. Bxc8? nauðsynlegt var að leika 17. dxe5 þótt svartur standi þá líka betur að vígi eftir 17. … Hc4. Eftir textaleikinn tapar hvítur liði. 17. … Hxc8 18. De2 Rxc3 19. Hxc3 Hxc3 20. bxc3 Rg6 21. Dd2 Dg5 22. f4 Df5 23. g3 Ba6 24. He1 Bd3 25. He8+ Kh7 26. De3 Be4 27. c4 Dg4 28. cxd5 Bxd5 29. Hd8 Bc4 30. a3 Dd1+ og hvítur gafst upp. Í kvöld heldur Skákdeild KR sitt hefðbundna mánudagsmót og TG sitt skákkvöld, sjá skak.is.