Tækifæri Þorsteinn Leó Gunnarsson er í hópnum hjá Snorra.
Tækifæri Þorsteinn Leó Gunnarsson er í hópnum hjá Snorra. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ísland mætir Grikklandi í tveimur vináttulandsleikjum karla í handknattleik í Grikklandi um miðjan mars. Snorri Steinn Guðjónsson tilkynnti í gær 18 manna hóp fyrir ferðina en frá EM í janúar vantar Kristján Örn Kristjánsson sem er meiddur og Bjarka Má Elísson og Aron Pálmarsson sem fá frí

Ísland mætir Grikklandi í tveimur vináttulandsleikjum karla í handknattleik í Grikklandi um miðjan mars. Snorri Steinn Guðjónsson tilkynnti í gær 18 manna hóp fyrir ferðina en frá EM í janúar vantar Kristján Örn Kristjánsson sem er meiddur og Bjarka Má Elísson og Aron Pálmarsson sem fá frí. Í staðinn eru Teitur Örn Einarsson frá Flensburg, Orri Freyr Þorkelsson frá Sporting Lissabon og Þorsteinn Leó Gunnarsson frá Aftureldingu í hópnum.