Framkvæmdagjald í Reykjavík hækkar um 850% á milli ára.
Framkvæmdagjald í Reykjavík hækkar um 850% á milli ára. — Morgunblaðið/Golli
Samtök iðnaðarins (SI) hafa gert athugasemdir við það hvort gjaldskrárhækkun Reykjavíkurborgar á framkvæmdaleyfum í borgarlandinu gæti talist nýtt gjald, eins og gjaldið er sett fram í tillögum borgarstjóra um gjaldskrá sem lögð var fram í lok október sl

Samtök iðnaðarins (SI) hafa gert athugasemdir við það hvort gjaldskrárhækkun Reykjavíkurborgar á framkvæmdaleyfum í borgarlandinu gæti talist nýtt gjald, eins og gjaldið er sett fram í tillögum borgarstjóra um gjaldskrá sem lögð var fram í lok október sl. og tók gildi í byrjun ársins.

Umrætt framkvæmdagjald fyrir minniháttar framkvæmdir, eins fyrir lagningu ljósleiðara, nam um 27 þús. kr. en hækkar samkvæmt nýju gjaldskránni í ríflega 214 þús. kr., sem jafngildir 850% hækkun.

Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri hjá SI, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að í raun sé verið að hækka leyfisgjald sem Míla hefur greitt borginni um langa hríð. Hún bendir á að Míla hafi verið að greiða umrætt gjald í lengri tíma af öllum framkvæmdum vegna koparleiðara og núna ljósleiðara. SI þykir einnig athyglisvert við hækkunina að þetta tiltekna gjald þarf eingöngu að greiða í borgarlandinu og ekkert af nágrannasveitarfélögunum innheimtir sama gjald.

SI þykir tímasetningin á hækkuninni vera athyglisverð í ljósi þess að borgin á 94% í helsta keppinaut Mílu, Ljósleiðaranum, sem þegar er búinn að ljósleiðaravæða allt höfðuborgarsvæðið. Míla er nú að skipta koparkerfinu út fyrir ljósleiðara, sem þýðir að fyrirtækið verður að kaupa framkvæmdaleyfi af borginni. Leyfiskostnaður Mílu í fyrra var 2,7 m.kr. og ef fyrirtækið kaupir sama fjölda af leyfum á þessu ári fer kostnaðurinn í 26 m.kr.